Björgvin G. Sigurðsson, S-lista víkur af fundinum undir þessum lið, kl. 16:49, vegna vanhæfis.
Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur að nýju fram bókun sína frá skipulagsnefndarfundi:
"Undirritaður tekur undir ítrekaðar athugasemdir þær sem borist hafa frá íbúum nærliggjandi húsa sem snúa að hæð og byggingarmagni sem lagt er til skv. framlagðri deiliskipulags tillögu. Undirritaður telur að bygging á reitnum eigi að hámarki að vera 2 hæðir og byggingarmagn verði minnkað í samræmi við það til að falla betur að heildarásýnd hverfisins og nærliggjandi byggingum sem eru að mestu leyti einbýlishús á 1 hæð.
Af framangreindum ástæðum greiði ég atkvæði á móti deiliskipulagstillögunni."
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum, 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista, framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og telur að brugðist hafi verið við athugasemdum og umsögnum sem bárust vegna tillögunnar á auglýsing- og kynningartíma tillögunnar. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista sat hjá við atkvæðagreiðslu og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista og báðir fulltrúar B-lista greiða atkvæði á móti tillögunni.
Ellý Tómasdóttir, B-lista, gerði grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Ákvörðunin byggir fyrst og fremst á áhyggjum af umfangi þeirrar uppbyggingar sem hér er lögð til og hvernig hún fellur að núverandi byggð og aðstæðum á svæðinu.
Að mínu mati vekur stærð verkefnisins, ásamt fjölda íbúða og fyrirkomulagi bílastæða, upp eðlilegar spurningar um hvort um sé að ræða hæfilega nýtingu lóðarinnar og hvort nægilegt tillit hafi verið tekið til nærliggjandi byggðar og athugasemda íbúa. Tel ég mikilvægt að við sem sveitarfélag drögum lærdóm af ferlinu. Æskilegt er að skýrari skipulagsforsendur og rammi um uppbyggingu liggi fyrir áður en lóðir eru seldar, þannig að auka megi fyrirsjáanleika og draga úr ágreiningi. Með því móti tel ég að við getum styrkt traust íbúa til ákvarðanatöku sveitarfélagsins og stuðlað að uppbyggingu sem nýtur breiðari sáttar."
Björgvin G. Sigurðsson kemur aftur inn á fundinn kl. 17:02.