Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 62
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september sl. liður 5. Opin svæði OP1; Óveruleg breyting á aðalskipulagi.
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytinga á aðalskipulagi sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036 sem tekur til OP1 opinna svæða. Í breytingunni felst að skilgreint er aukið byggingarmagn á svæði sem ætlað er sem aðstaða fyrir skátana. Samhliða er unnið að gerð deiliskipulags sem tekur til viðkomandi svæðis.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sem tekur til byggingarmagns á svæðis OP1. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst á opinberum vettvangi auk þess sem hún verði kynnt sérstaklega samhliða kynningu nýs deiliskipulags fyrir svæðið áður en tillagan verði send til samþykktar Skipulagsstofnunar.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 10 atkvæðum, framangreinda óverulega breytingu á aðalskipulagi sem tekur til byggingarmagns á svæðis OP1. Bæjarstjórn samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Bæjarstjórn samþykkir að niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst á opinberum vettvangi auk þess sem hún verði kynnt sérstaklega samhliða kynningu nýs deiliskipulags fyrir svæðið áður en tillagan verði send til samþykktar Skipulagsstofnunar.