Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 49
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar frá 27. nóvember sl. liður 7. Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting. Kristinn Ragnarsson f.h. Reyrus ehf. leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi. Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð. Gert er ráð fyrir byggingu á 3-4 hæða fjölbýlishúsi auk kjallara. Fjöldi íbúða allt að 21 . Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 20 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt leiksvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif, bæði af 3 hæðahús og 4 hæða húsi.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. sömu laga, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41. gr. sömu laga. Skipulagsnefnd telur að þar sem lágreist byggið standi nærri skipulagsmörkun sé nauðsynlegt að íbúum við Heiðmörk verði kynnt tillagan sérstaklega.
Svar

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista.

Bragi Bjarnason leggur til að málinu verði frestað og vísað aftur til frekari úrvinnslu byggingar- og skipulagsnefndar.

Tillaga Braga Bjarnason er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.