Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 49
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 13. fundi velferðarnefndar frá 28. nóvember, liður 8. Breytingar á reglum um akstursþjónustu við fatlað fólk Lagt er fyrir Velferðarnefnd uppfærðar reglur um akstursþjónustu fatlaðra. Velferðarnefnd tekur undir mikilvægi þess að sett séu inn ákvæði um aðstoð fylgdarmanna í ferðaþjónustu fatlaðra. Að mati nefndarinnar er þjónustan mikilvæg viðbót við þjónustu við fatlaða og er ætlað að auka tækifæri þeirra til að taka þátt í samfélaginu og lifa sjálfstæðu lífi.
Velferðarnefnd samþykkir reglurnar og felur deildarstjóra að útfæra verklag varðandi mat á fylgd í ferðaþjónustu. Velferðarnefnd vísar þeim til bæjarstjórnar til samþykktar.
Svar

Til máls tók Helga Lind Pálsdóttir, D-lista.

Reglurnar eru bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða með 11 atkvæðum.