Fyrirspurn
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar frá 27. nóvember sl. liður 5.
Eyravegur 42 - 44. - Deiliskipulag verslunar- og þjónustu auk íbúðabyggðar.
Lagfærð gögn vegna deiliskipulags verslunar- og þjónustu auk íbúðarbyggðar við Eyraveg 42-44 eru hér lögð fram á ný eftir afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Tillagan var auglýst fyrst frá 20.12.2023 til 31.1.2024.
Engar almennar athugasemdir bárust á þeim tíma. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Vegagerðin gerði athugasemd við tillöguna í umsögn sinni dags. 9.1.2023, þar sem ekki var fallist á nýja aðkomu inn á lóð 44 við Eyraveg. Í kjölfarið var breytt tillaga lögð fram sem gerir ráð fyrir að aðkoma að lóð 44 verði frá Fossvegi. Þá hafði
uppstillingu byggingarklasa fyrir lóð 44 verið snúið við, þannig að opið svæði innan lóðar snúi að Eyravegi.
Tillagan var í framhaldi auglýst á ný frá 19.06.2024 til 31.07.2024. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Vegagerðin gerði athugasemd við tillöguna með bréfi dags.
18.7.2024, sem bendir á fyrri umsögn Vegagerðar frá 09.01.2024, þar sem fjallað er um aðkomur af Eyrarbakkavegi og leggur Vegagerðin til að syðri aðkoma að Eyrarvegi 42 verði lögð af. Tillagan er lögð fyrir skipulagsnefnd að nýju, þar sem villa var í bókun fundar skipulagsnefndar 14.8.2024. Skipulagsnefnd hefur komið til móts við fyrri athugasemdir Vegagerðarinnar og fært aðkomu að Eyravegi 44 inn á Fossveg. Nefndin telur að athugasemdir í umsögn Vegagerðarinnar dags. 18.7.2024 muni rýra verulega gæði lóðarinnar Eyravegur 42.
Við lóðina hafa í gegnum tíðina verið tvær aðkomur og hafa þær þjónað vel tilgangi verslunar á lóðinni. Skipulagsnefnd telur að með því að hafa einungis útakstur af syðri aðkomu muni það bæta umferðarflæði frá lóð og auka öryggi
Tillagan var send til afgreiðslu Skipulagsstofnunar með bréfi dags.
5.9.2024 og niðurstaða bæjarstjórnar Árborgar auglýst í Dagskránni, Lögbirtingablaði og á heimasíðu Árborgar dags. 19.9.2024.
Skipulagsstofnun bendir á nokkra þætti sem þarf að bregðast við áður en hægt er að samþykkja deiliskipulag í B-deild Stjórnartíðinda með bréfi dags. 26.9.2024. Gera þurfi grein fyrir umhverfismati áætlunarinnar og niðurstöðu í greinargerð, niðurstöðu kortlagningar af hávaða, samræma upplýsingar um heimilaðan fjölda íbúða og setja fram í skilmálatöflu heimilað byggingarmagn ofan- og neðanjarðar, þar sem gert er ráð fyrir
bílakjöllurum.
Komið hefur verið til móts við ábendingar Skipulagsstofnunar með uppfærðum uppdrætti, hljóðvistargreiningu og umhverfisskýrslu og eru báðar skýrslur lagðar fram í skipulagsnefnd skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir framkomið minnisblað um hljóðvistargreiningu og umhverfisskýrslu auk uppfærslu á uppdrætti og greinargerð skipulagsins.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda.