Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Lögð fram tillaga að bókun bæjarstjórnar Árborgar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi.
Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð. Þá er gert ráð fyrir stækkun á byggingarreit til norðurs og austurs, auk þess sem heildarnýtingarhlutfall er aukið um 0,1, úr 1,7 í 1.8.
Gert er ráð fyrir byggingu á 3 hæða fjölbýlishúsi auk bílakjallara. Fjöldi íbúða allt að 21. Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 17 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt útisvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif af 3 hæða húsi. Aðkoma er frá Heiðmörk.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum skipulagstillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við ofangreinda grein skipulagslaga. Bæjarstjórn leggur áherslu á að tillagan verði sérstaklega kynnt íbúum við Heiðmörk, íbúum við Austurveg 55 (austurálma) og Mjólkursamsölunni. (MS)