Til máls tekur Ari B. Thorarensen, D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 10 atkvæðum, framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Bæjarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagna og samantektar athugasemda, umsagna og viðbragða. Bæjarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.