Furuás 30, frágangur lóðar
Furuás 30
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 267
1. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Ítrekuð hefur verið kvörtun vegna frágangs á lóðinni Furuás 30. byggingarefni, krani, steypumót og annað efni er á lóðinni, og staflað hefur verið upp efni beggja vegna götunnar. Talið er að hætta stafi af þessu. Byggingarstjóri hefur mætt í viðtal, segist enn vera að vinna í lóðinni, en viðmælandi sem sendi erindið telur ekkert vera þar að gerast nema bæta inn drasli á lóðina. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 28.07.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs sem samþykkti eftir farandi 03.08.10: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra Furuáss 30 skylt að fjarlægja tilgreint efni og tæki af lóðinni og götunni nú þegar. Verði ekki brugðist við því innan fjögurra vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlts Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 29.11.10.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á eiganda byggingarkrana fyrir framan húsið Furuás 30 kr. 20.000/dag frá og með 1. mars 2010 í samræmi við 56. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010 hafi kraninn ekki verið fjarlægður fyrir þann tíma."

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 207233 → skrá.is
Hnitnúmer: 10084782