Selhella 5,byggingarstig og notkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 267
1. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Selhella 5,er á byggingarstigi 1 en ekki séð annað en að það sé búið að fullbyggja húsið sem er á iðnaðarsvæði. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 28.04.2010 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áður lagt fram bréf Einars Sigurðssonar byggingarstjóra dags. 05.05.2010. Skipulags- og byggingarfulltrúi frestaði erindinu 12.05.10. Síðan hefur ekkert gerst í málinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 17.11.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs sem bókaði eftirfarandi 30.11.10: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra/eigendum skylt að sækja um fokheldisúttekt innan þriggja vikna. Berist hún ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að leggja dagsektir kr. 20.000/dag á byggingarstjóra Selhellu 5 frá og með 1. mars 2011 hafi hann ekki boðað til fokheldisúttektar fyrir þann tíma."