Samþykkt. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur áherslu á að uppbygging húsnæðis taki mið af raunverulegri eftirspurn og þörfum íbúa. Mikilvægt er að skipulagsákvarðanir stuðli að því að byggt sé það húsnæði sem fólk vill kaupa og búa í. Því er mikilvægt að við mótun skipulags og viðmiða verði í auknum mæli leitað eftir sjónarmiðum bæði íbúa og uppbyggingaraðila, meðal annars um íbúðastærðir, fjölda bílastæða, verslunar- og þjónusturými og aðra þætti sem hafa áhrif á gæði og markaðshæfni nýrrar byggðar. Fyrr á árinu kannaði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun viðhorf fólks til búsetu og skipulagsóskir og má túlka niðurstöður þeirrar könnunar á þann veg að þær sýni að núverandi stefna í skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu endurspegli ekki óskir íbúanna og er því mikilvægt að endurskoða stefnuna. Markmiðið er að skapa sveigjanlegra skipulagsumhverfi sem gerir markaðnum betur kleift að bregðast við fjölbreyttum þörfum borgarbúa og stuðlar að öflugri og hagkvæmari húsnæðisuppbyggingu.