Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 381
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um skógrækt í borgarlandi: Lagt er til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að koma með tillögu að því hvernig best væri að planta 50.000 trjáplöntum í borgarlandinu m.a. í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur og leik og grunnskólabörn í Reykjavík. Tillagan verði unnin í samráði við skóla- og frístundasvið og unnin með stefnu Reykjavíkurborgar um líffræðilegan fjölbreytileika að leiðarljósi. Markmiðið er að auka gróður bæði á grænum svæðum sem og inn í hverfum.
Svar

Samþykkt. Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggja áherslu á að plantað sé fjölbreyttum trjágróðri í formi borgartrjáa og runna vítt og breytt um borgina. Trjágróður er ómissandi hluti af fallegu og heilnæmu borgarlandslagi. Fjölbreyttur trjágróður eykur líffræðilegan fjölbreytileika, bætir loftgæði, dregur úr vindi og getur stuðlað að bættri heilsu borgarbúa. Meirihlutinn leggur áherslu á að verkefnið sé unnið með stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika í huga og að trjágróðurinn njóti sín yfir allar árstíðir. Meirihlutinn leggur einnig áherslu á að plantað verði berjarunnum og jafnvel ávaxtatrjám og borgarbúum þannig gert kleift að týna ávexti og ber í borgarlandslaginu. Verkefnið er hugsað með þátttöku sem flestra borgarbúa í huga, m.a. skólabarna sem nýta má samhliða í fræðslu um umhverfismál og landgræðslu. Er því lagt upp með að skóla- og frístundasvið komi að útfærslu tillögunnar. Einnig er lagt upp með að verkefnið sé unnið í samstarfi við Skógræktina. Mikilvægt er að leggja sérstaka áherslu á ný hverfi þar sem græn svæði hafa vikið fyrir nýrri byggð.