Samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn 2 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Með samþykkt tillagnanna tveggja, annars vegar um íbúða- og húsagerðir og hins vegar um verslun og þjónustu á jarðhæðum, er aukinn sveigjanleiki tryggður við gerð deiliskipulags. Að jafnaði verði ekki sett stíf bindandi hlutfallsviðmið um stærðir eða herbergjafjölda íbúða á einstökum byggingarreitum nema sérstakar skipulagslegar, félagslegar eða lýðfræðilegar forsendur réttlæti það. Aukið svigrúm uppbyggingaraðila þarf þó að haldast í hendur við markmið um fjölbreytt húsnæði og mat á áhrifum íbúðasamsetningar á skóla, samgöngur, þjónustu og félagslega samsetningu hverfa. Krafa um tiltekna atvinnu-, verslunar- eða þjónustustarfsemi á jarðhæðum verði aðeins sett þar sem staðsetning, raunhæf eftirspurn og skipulagsmarkmið gefa tilefni til. Á stærri uppbyggingarsvæðum þarf áfram að tryggja nægilegt rými fyrir nærþjónustu og virkar jarðhæðir á réttum stöðum. Sviðið skýri jafnframt hvað felist í virkum eða lifandi jarðhæðum, meðal annars með hliðsjón af nærþjónustu, aðlaðandi götumynd og því að íbúðir séu ekki staðsettar í rýmum sem henta illa til búsetu.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Borgarskipulag snýst um að gæta almannahagsmuna til framtíðar og tryggja að uppbygging innviða haldist í hendur við íbúaþróun, lífsgæði íbúa og öryggi. Þær tillögur sem hér eru bornar fram birtast sem dulbúin árás á sjálfbæra byggð, 15-mínútna hverfið og ábyrga innviðaáætlanagerð. Þegar tillögurnar eru skoðaðar í samhengi við afnám á hámarksfjölda bílastæða og 90% afslátt af gatnagerðargjöldum neðanjarðar, blasir við hættuleg sýn: Að afnema nánast allan skipulagsramma borgarinnar og framselja vald yfir hverfaþróun til frjáls markaðar - sem bera enga ábyrgð á heildarmyndinni. Allar áætlanir borgarinnar um leik- og grunnskóla, íþróttamannvirki, veitur og samgöngur miðast við áætlaðan íbúafjölda. Að afnema lágmarksviðmið um íbúðasamsetningu í nýjum hverfum er óvarlegt og gerir alla innviðaspá ómögulega. Samfylkingin tekur undir það að oft líða of mörg ár frá gerð deiliskipulags þar til framkvæmdir hefjast og á þeim tíma getur fjöldi fólks og samsetning breyst. Eðlilega viðbragðið við því er að gera hnitmiðaðar deiliskipulagsbreytingar þegar nær dregur framkvæmdum – en ekki að sleppa hendinni af skipulagsrammanum frá upphafi. Við undirstrikum, í takt við umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, að aukinn hönnunarsveigjanleiki á rétt á sér á smærri þéttingarreitum í eldri byggð eða við endurbætur húsa, en ný heildstæð hverfi verða að búa við skýran ramma svo hægt sé að tryggja samfélagslega innviði.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Í ljósi hækkandi aldurs þjóðarinnar og breyttrar samfélagsgerðar er mikilvægt fyrir borgaryfirvöld að taka mið af síðustu könnun HMS varðandi óskir og væntingar fólks. Vegna þess að aukning er á því að fólk búi eitt er mikil þörf á margs konar búsetuformum, bæði til eignar og leigu. Að borgin beiti sér fyrir því að hægt verði að koma slíkum verkefnum í farveg með því að útvega lóðir. Mikil þörf er fyrir óhagnaðardrifið húsnæði fyrir alla aldurshópa. Eldri borgurum verði gert kleift að minnka við sig með því að byggja þeim húsnæði við hæfi. Þar er uppsafnaður vandi sem myndi leysa margt. Fólk þarf að hafa val um það hvernig það vill búa.