Kjalarnes, Sætún II (Smábýli 15)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1086
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, dags. 26. október 2026, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda þegar skipulagsgögn hafa verið lagfærð. Í greinargerð þarf að koma fram heimiluð stærð byggingar en í tilkynningu vegna matsskyldu framkvæmdarinnar kemur fram að áætlað sé að byggingin verði um 800 m² ásamt því að æskilegt er að sýna staðsetningu rotþróar á deiliskipulagsuppdrætti. Einnig er óskað eftir skýringu á því að ekki hafi verið leitað eftir umsögnum opinberra aðila í skipulagsferlinu. Einnig er lagt fram svarbréf skipulagsfulltrúa til Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar, dags. 3. nóvember 2026, uppfærður uppdráttur TAG teiknistofu ehf, dags. 8. júní 2026, br. 27. október 2026, og uppfærð greinargerð og skipulagsskilmálar TAG teiknistofu ehf, dags. 8. júní 2026, br. 27. október 2026 Svarbréf skipulagsfulltrúa til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar lagt fram ásamt uppfærðum skipulagsgögnum.