Lögð fram umsókn
Skurnar ehf.
, dags. 25. febrúar 2025, um gerð nýs deiliskipulags fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Skipulagssvæðið nær yfir allt Sætún II á Kjalarnesi sem afmarkast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Með deiliskipulaginu verður skilgreindur byggingarreitur og uppbyggingar- og starfsemisheimildir en annar hluti jarðarinnar er óbreytt landnotkun, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf., dags. 28. júní 2026. Einnig er lögð fram greinargerð og skipulagsskilmálar TAG teiknistofu ehf., dags. 8. júní 2026. Jafnframt er lögð fram matsskyldufyrirspurn, dags. í febrúar 2026, og ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um matsskyldu, dags. 11. maí 2026.