Fyrirspurn
Lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 31. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir uppfærðri umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar B.M. Vallár um starfsleyfi fyrir bifreiðaverkstæði, eldsneytisafgreiðslu og bílaþvott að Bíldshöfða 7. Skipulagsfulltrúi gerði umsögn árið 2024 vegna umsóknar B.M Vallár um endurnýjun starfsleyfis fyrir steypustöðvar og steypueiningarverksmiðju á sömu lóð. Virðist sem það hafi gleymst að bæta bifreiðaverkstæðishlutanum við. Eldsneytisafgreiðsla og þvottur bifreiða hefur verið stundaður á lóðinni í mörg ár þó það hafi ekki verið tilgreint í starfsleyfinu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. nóvember 2026.