Kjalarnes, Sætún II (Smábýli 15)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1076
Samþykkt
‹ 16
17
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Skurnar ehf. , dags. 25. febrúar 2025, um gerð nýs deiliskipulags fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Skipulagssvæðið nær yfir allt Sætún II á Kjalarnesi sem afmarkast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Með deiliskipulaginu verður skilgreindur byggingarreitur og uppbyggingar- og starfsemisheimildir en annar hluti jarðarinnar er óbreytt landnotkun, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf., dags. 28. júní 2026. Einnig er lögð fram greinargerð og skipulagsskilmálar TAG teiknistofu ehf., dags. 8. júní 2026. Jafnframt er lögð fram matsskyldufyrirspurn, dags. í febrúar 2026, og ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um matsskyldu, dags. 11. maí 2026. Tillagan var auglýst frá 9. júlí 2026 til og með 20. ágúst 2026. Ábending barst frá Veitum, dags. 28. júlí 2026.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.