Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 391
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, að nýju deiliskipulagi fyrir Loftleiðareit. Skipulagssvæðið afmarkast af Hlíðarfæti í norðri, Nauthólsvegi í austri og lóðamörkum aðliggjandi lóða í vestri (Reykjavíkurflugvöllur) og suðri (Isavia). Fyrirhugað er að þróa reitinn sem lífsgæðakjarna með blandaðri notkun íbúðarbyggðar, leik- og grunnskóla, hjúkrunarheimilis, hótelstarfsemi, verslunar og þjónustu. Lýsingin var kynnt frá 8. maí 2026 til og með 5. júní 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Innkomnar athugasemdir og umsagnir vegna skipulagslýsingar kynnt.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Stutt er að áfram verði unnið að deiliskipulagi Loftleiðareits með það að markmiði að skapa lífsgæðakjarna með fjölbreyttri búsetu og þjónustu. Athugasemdir Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Isavia um hávaða, loftmengun og nálægð við flugvallarstarfsemi eru teknar alvarlega, sérstaklega með tilliti til barna og aldraðra. Við áframhaldandi vinnu verði sýnt fram á hvernig tryggja megi viðunandi umhverfisgæði og brugðist við athugasemdum umsagnaraðila með nauðsynlegum breytingum og skýrum skilmálum áður en endanleg afstaða er tekin til deiliskipulagstillögu.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar eru jákvæðir gagnvart uppbyggingu lífsgæðakjarna á Loftleiðareit. Þar gefst tækifæri til að skapa fjölbreytt búsetuúrræði fyrir eldra fólk, hjúkrunarrými og þjónustu í nálægð við Borgarlínu, í nálægð við frábær útivistarsvæði og vaxandi byggð við Öskjuhlíð. Sérstaklega er ánægjulegt að gert sé ráð fyrir 30% hagkvæmum og vistvænum íbúðum og 5% félagslegu húsnæði. Athugasemdir Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Isavia um hljóðvist, loftmengun og flugöryggi þarf að taka alvarlega. Heilsa og öryggi barna, eldra fólks og annarra íbúa verða að vera tryggð. Borgarstjórn samþykkti 1. apríl 2025 að beita sér fyrir flutningi einkaþotna og almenns kennslu- og þyrluflugs frá Reykjavíkurflugvelli, samhliða því að tryggja áætlunar- og sjúkraflug. Mikilvægt er að fylgja þeirri samþykkt eftir og meta sérstaklega hvort slíkar breytingar geti dregið nægilega úr hávaða og loftmengun til að uppfylla viðmið fyrir fyrirhugaða byggð. Jafnframt þarf að meta möguleg áhrif nýrra bygginga á flugöryggi. Fulltrúar Samfylkingarinnar vilja sjá þetta mikilvæga verkefni verða að veruleika, enda verði sýnt fram á að kröfur um lýðheilsu og flugöryggi séu uppfylltar.