Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 391
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn TÓ arkitekta ehf., dags. 5. mars 2026, um breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta notkun hússins þannig að heimilt verði að reka þar hótel með allt að 90 herbergjum. Breytingin felur einnig í sér heimild til hækkunar hússins um eina inndregna hæð ásamt heimild til að grafa frá húsinu austanverðu til að sækja birtu ofan í kjallara, samkvæmt uppdr. TÓ arkitekta, dags. 14. apríl 2026, br. eftir auglýsingu. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 1. apríl 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. september 2026.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2026.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1, Valhallar, með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu. Tillagan felur meðal annars í sér að heimila hótelstarfsemi með allt að 90 herbergjum, hækkun hússins um eina inndregna hæð og breytingar vegna nýtingar kjallara. Fyrirhuguð hótelstarfsemi samræmist Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040, enda er lóðin á miðsvæði M2b þar sem meðal annars er gert ráð fyrir hótelum, veitingastöðum, skrifstofum og annarri þjónustustarfsemi. Við meðferð málsins hafa komið fram athugasemdir sem lúta meðal annars að eignarhlutdeild á sameiginlegri lóð, þinglýstum samningum og réttindum tengdum bílastæðum. Meirihlutinn áréttar að með samþykkt deiliskipulagsins er ekki tekin afstaða til þess einkaréttarlega ágreinings sem uppi er milli aðila um eignarrétt eða afnotarétt af bílastæðum eða önnur réttindi á lóðinni. Deiliskipulagsáætlun getur ekki ráðstafað eða hróflað við slíkum eignarréttindum og verður ágreiningur um þau leystur milli viðkomandi aðila eða, eftir atvikum, fyrir dómstólum. Afgreiðsla ráðsins byggir því á skipulagslegum forsendum málsins og felur ekki í sér úrlausn Reykjavíkurborgar um einkaréttarleg réttindi einstakra eigenda eða samlóðarhafa.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar eru jákvæðir gagnvart því að Valhöll við Háaleitisbraut fái nýtt hlutverk. Það er skynsamlegt að nýta betur lóð og húsnæði sem þegar stendur og þróa byggðina áfram. Við gerum ekki athugasemd við eina inndregna hæð, enda verði byggingarlistarlegt gildi hússins varðveitt. Sérstaklega fögnum við því að jarðhæðin eigi að vera opin almenningi með verslun eða þjónustu sem glæðir götuna lífi. Bílastæðamál ættu ekki ein og sér að stöðva verkefnið. Á Valhallarreitnum er gert ráð fyrir 74 íbúðum með 66 stæðum í bílakjöllurum og 49 stæðum á yfirborði. Samgöngumatið áætlar mesta samtímaþörf á yfirborði um 35 stæði. Mikilvægt er þó að skýra hvernig samnýtingu stæðanna verður háttað, tryggja réttindi samlóðarhafa og útfæra örugga aðkomu hópbifreiða og vöruflutninga.