Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, að nýju deiliskipulagi fyrir Loftleiðareit. Skipulagssvæðið afmarkast af Hlíðarfæti í norðri, Nauthólsvegi í austri og lóðamörkum aðliggjandi lóða í vestri (Reykjavíkurflugvöllur) og suðri (Isavia). Fyrirhugað er að þróa reitinn sem lífsgæðakjarna með blandaðri notkun íbúðarbyggðar, leik- og grunnskóla, hjúkrunarheimilis, hótelstarfsemi, verslunar og þjónustu. Lýsingin var kynnt frá 8. maí 2026 til og með 5. júní 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust.