Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 10 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 383
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 25. september 2024 voru lagðar fram tillögur að nýrri íbúðarbyggð við Sóleyjarrima þar sem samþykkt var að vinna áfram með tillögu Esju. Erindi er nú lagt fram að nýju til afgreiðslu. Tillögunni er hafnað með 5 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins og vísað aftur til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að fallið verði frá frekari vinnu við fyrirhugaða íbúðarbyggð á túninu við Sóleyjarrima, svokölluðu Sóleyjatúni, og felur umhverfis- og skipulagssviði að loka máli . Í verkefnalista meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar segir: „Við ætlum að falla frá fyrirhugaðri þéttingu í Grafarvogi og skoða ný tækifæri í samráði við íbúa.“ Ákvörðunin er tekin í samræmi við þá skýru stefnu. Meirihlutinn leggur áherslu á að næstu skref í húsnæðisuppbyggingu í Grafarvogi verði mótuð í raunverulegu samráði við íbúa og að leitað verði nýrra og hentugri uppbyggingartækifæra þar sem tekið er tillit til grænna svæða, skólastarfs, innviða og gæða nærumhverfis.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar harma það að meirihlutinn leggist alfarið gegn frekari uppbyggingu í Grafarvogi og lýsir yfir þungum áhyggjum af sífelldri frestun uppbyggingaáforma á höfuðborgarsvæðinu. Börnum í Grafarvogi hefur fækkað um 2000 frá aldamótum og gríðarlega mikilvægt er fá fram lýðfræðilegar breytingar í hverfinu svo nýta megi innviði hverfisins á skilvirkari vegu. Tillögurnar sem liggja fyrir í Sóleyjarima eru einmitt íbúðir sem henta vel fyrir eldra fólk, sem hefur skort í Grafarvogi og gætu komið þessum lýðfræðilegu breytingum af stað. Í tillögunum eru jafnframt stigin varleg skref og útkoman er fagleg og vönduð tillaga sem mætir kröfum íbúa um græn svæði og lágreista byggð og hefur ýmsa kosti til að gera gott hverfi enn betra.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Sóleyjariminn er vel unnin tillaga byggð á greiningum um þarfir hverfisins og eflingu grænna svæða. Affærasælast hefði verið að klára vinnuna, kynna ráðinu og senda í auglýsingu ríki sátt um hana. Nú draga meirihlutaflokkarnir tillöguna til baka með tilheyrandi töfum og kostnaði. Afgreiðslan felur aftur á móti ekki í sér að fallið sé alfarið frá uppbyggingaráformunum. Tillagan mun koma aftur í ráðið eitthvað breytt og þá spyr maður sig - af hverju ekki að halda vinnunni áfram sem sett var af stað á sínum tíma og fá endanlega niðurstöðu hennar frekar en þetta ráðast í þetta “skuespil”? Öll áform um stórtæka þéttingu í Grafarvogi kom með lúðrablæstri frá fyrrverandi borgarstjóra Framsóknarflokksins. Nú kveður við nýjan tón í afstöðu Framsóknarflokksins. Þegar nýr meirihluti tók til starfa í lok kjörtímabilsins var ákvörðun tekin að vinna einungis með tillögur sem hafa legið lengi fyrir í Aðalskipulagi enda yrðu þær til mikilla bóta fyrir hverfið, innviði þess og hverfisandann þegar fram í sækir. Það er nauðsynlegt að halda áfram uppbyggingu allra hverfa í Reykjavík og fjölga fjölbreyttum íbúðakostum og gera hverfi sjálfbær og aðlaðandi. Þetta á líka við um Grafarvoginn þar sem t.d. vantar íbúðir fyrir fólk sem er að minnka við sig.