Samþykkt. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar því að nú séu settar skýrar reglur um úthlutun nágrannavörsluskilta og þannig auðveldað fyrir íbúa að koma á virkri nágrannavörslu í sinni götu eða hverfi. Með einföldu og aðgengilegu umsóknarferli og skýrri verkaskiptingu er stigið mikilvægt skref í þá átt að gera fleiri íbúum kleift að taka höndum saman um öryggi og góðan nágrannaanda í sínu nærumhverfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja hugmyndina um nágrannavörslu og reglur um nágrannavörsluskilti enda er um gott verkefni að ræða sem borgin hefur unnið að í samvinnu við íbúa frá 2006. Samfylkingin leggur áherslu á að umræða um öryggismál byggist á staðreyndum og yfirvegun en ekki hræðsluáróðri. Umræða um nýlega innbrota bylgju hefur skort upplýsta tölfræði og samhengi við fyrri ár eða aðrar borgir. Lögreglan staðfestir að innbrotin voru unnin af fáum og þekktum einstaklingum í alvarlegri félagslegri neyð — vanda sem dýpkar vegna skorts á úrræðum, plássleysi í fangelsum og skerðingu á nærþjónustu líkt og lokun Kaffistofu Samhjálpar. Nágrannavarsla má aldrei verða að óttastjórnun eða samfélagsmiðlavöktum sem elur á tortryggni gagnvart viðkvæmum hópum eða fólki af erlendum uppruna. Félagslegum vanda verður að mæta með félagslegum úrræðum, skaðaminnkun og raunverulegum forvörnum. Örugg borg er borg sem greinir vandann rétt og passar upp á alla sína íbúa.