Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagna því að hafin sé vinna við framtíðarsýn fyrir Grundarhverfi og nágrenni á Kjalarnesi. Kjalarnes býr yfir miklum tækifærum til uppbyggingar sem byggir á sérstöðu svæðisins og óskum íbúa. Fjölgun íbúa getur skapað grundvöll fyrir betri þjónustu, öflugri innviði, fleiri atvinnutækifæri og sjálfbærara samfélag. Áhersla verði áfram lögð á fjölskylduvænt hverfi þar sem séreign, sérbýli og lágreist byggð verði ráðandi, samhliða fjölbreyttu húsnæðisframboði sem mætir þörfum íbúa á ólíkum æviskeiðum. Fulltrúar meirihlutans taka undir það sem fram kemur í umsögnum valnefndar að mesta framtíðartækifærið felist í að byggja á staðaranda Kjalarness fremur en að endurskapa þétt borgarhverfi. Markmiðið á að vera samfélag þar sem fólk kýs að búa til lengri tíma, eignast heimili og taki þátt í uppbyggingu hverfis sem heldur í sérstöðu sína um leið og það vex og eflist.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna faglegri hugmyndaleit fyrir Grundarhverfi sem sett var af stað á nýliðnu kjörtímabili. Vinningstillagan sýnir næmni fyrir staðaranda, landslagi og sögu svæðisins og verður spennandi að fylgjast með þróun tillögunnar á næstu misserum sem vinna þarf í góðu samráði við íbúa Kjalarness. Samfylkingin hvetur jafnframt til þess að stóra myndin í samgöngumálum verði höfð að leiðarljósi. Í hvert sinn sem ný hverfi eru skipulögð þurfum við að gæta þess að læsa ekki niður áætlanir sem gerir íbúa háðari notkun einkabíls í sínu daglega lífi með tilheyrandi aukningu á umferðarteppu. Því þurfa alltaf að liggja fyrir raunhæfar áætlun um uppbyggingu innviða og almenningssamgangna.