Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 360
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um afhendingu ástandsmats vegna viðhalds gangstétta, sbr. 32. liður umhverfis- og skipulagsráðs dags. 10. september 2025. Einnig er lögð fram kynning sem fór fram 30. apríl 2025 og minnisblað dags. 23. október 2025. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun: Fulltrúi Viðreisnar fagnar auknu aðgengi að stöðumati á gangstéttum í borgarlandinu. Staðan er grafalvarleg og mikilvægt að setja áherslu á að bæta möguleika borgarbúa að ferðast um gangandi. Eins og staðan er í dag er stór hluti gangstétta gerónýtur eða undir 10% í lagi mv. meðfylgjandi gögn. Af þessu stafar augljós hætta og takmarkar lífsgæði borgarbúa og þá sérstaklega þeirra sem eiga ekki gott með gang fyrir. Fulltrúinn vonast eftir að aðgerðir sem snúa að stéttum og stígum fái í kjölfarið aukið vægi í umræðum borgarfulltrúa áherslum sviðsins.