Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um götubreytingar við gatnamót Víkurvegar, Þúsaldar og Reynisvatnsvegar, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 1. október 2025. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 23. október 2025.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokks.
Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks harma að fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna felli tillögu um úrbætur á gatnamótum Víkurvegar, Þúsaldar og Reynisvatnsvegar. Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal hafa lengi óskað eftir úrbótum á umræddum gatnamótum í þágu aukins umferðaröryggis og bætts umferðarflæðis. Árum saman hefur verið sagt að málið sé í skoðun hjá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg án nokkurrar sýnilegrar framvindu. Reykjavíkurborg þarf því að taka málið upp við Vegagerðina og óska eftir því að úrbætur á umræddum gatnamótum verði settar í forgang. Með því að fella fyrirliggjandi tillögu Sjálfstæðisflokksins um málið, sýnir vinstri meirihlutinn í borgarstjórn að hann er algerlega áhugalaus um úrbætur á umræddum gatnamótum.