Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka ósk um að fá afhent ástandsmat vegna viðhalds gangstétta og göngustíga í Reykjavík. Óskin var lögð fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 30. apríl sl. og ítrekuð á fundi ráðsins 21. maí. Vinna við slíkt ástandsmat hefur staðið árum saman og eðlilegt er að upplýsa borgarfulltrúa um afrakstur þeirrar vinnu. Óskað er eftir upplýsingum um hvenær upplýsingarnar verði lagðar fyrir ráðið.