Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 360
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Hamrastekk, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 5. nóvember 2025. Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokks. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna skuli fella tillögu Sjálfstæðisflokksins um að umferðaröryggi verði aukið á Hamrastekk með því að merkja gönguþverun þar sem gangbraut. Það hefur ítrekað komið í ljós að umræddur staður er hættulegur og þar þarf því að auka umferðaröryggi. Um er að ræða fjölfarna leið barna og ungmenna og lýsir það afar slæmu viðhorfi til umferðaröryggismál að fulltrúar meirihlutans vilji ekki einu sinni að skoðað verði að ráðast í úrbætur á þessum stað.