Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 353
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Nýs Landspítala ohf. , dags. 21. júlí 2025, ásamt skipulagslýsingu, dags. september 2025, fyrir breytingu á deiliskipulagi Landspítalans Fossvogi (Borgarspítalans). Skipulagssvæðið afmarkast af Háaleitisbraut til vesturs, suðurjaðri Borgarspítalans til norðurs, núverandi íbúðabyggð við Markarveg og Kjarrveg til suðurs og Álftalandi til austurs. Í breytingunni sem lögð er til felur í sér að deiliskipuleggja reitinn sunnan og austan núverandi Borgarsjúkrahúss / Landspítala í Fossvogi undir nýtt geðsvið LSH með áherslu á fremstu gæði varðandi allan aðbúnað og upplifun fólks við útfærslu sérhæfðs geðsjúkrahúss fyrir starfsmenn, sjúklinga og gesti þeirra. Einnig er lögð fram greinargerð Nýs landspítala/forathugun vegna nýbyggingar, dags. í september 2024, bréf stýrihóps um skipulag framkvæmda við Landspítala og önnur sérhæfð sjúkrahús, dags. 25. nóvember 2024, og áfangaskýrsla Eflu, dags. 10. september 2025, um kostamat fyrir staðsetningar geðþjónustu Landspítala í Fossvogi.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitur ohf, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni en auk þess skal útfæra skipulagsgerðina í samráði við skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar og skrifstofu umhverfisgæða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur, USK, auk skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.