Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 380
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju umsókn Nýs Landspítala ohf., dags. 21. júlí 2025, ásamt skipulagslýsingu, dags. september 2025, vegna breytingar á deiliskipulagi Landspítalans Fossvogi (Borgarspítalans). Skipulagssvæðið afmarkast af Háaleitisbraut til vesturs, suðurjaðri Borgarspítalans til norðurs, núverandi íbúðabyggð við Markarveg og Kjarrveg til suðurs og Álftalandi til austurs. Breytingin sem lögð er til felur í sér að skipuleggja reitinn sunnan og austan núverandi Borgarsjúkrahúss / Landspítala í Fossvogi undir nýtt geðsvið LSH með áherslu á fremstu gæði varðandi allan aðbúnað og upplifun fólks við útfærslu sérhæfðs geðsjúkrahúss fyrir starfsmenn, sjúklinga og gesti þeirra. Samkvæmt húsrýmisáætlun Nýs Landspítala NLSH er gert ráð fyrir um 24.000 fermetra nýbyggingu í fyrsta áfanga með möguleika á seinni tíma stækkun. Gert er ráð fyrir að stærri þjónustueiningar og byggingahlutar verði með sér inngarða og svæði til endurhæfingar, mest á tveimur hæðum. Útfærsla nýbyggingar, lóðar og næsta umhverfis verður hluti af batamiðaðri meðferð sjúklinga. Í kjölfar lýsingar mun deiliskipulagsgerð byggja á samþykktum áætlunum og stefnum: Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030; Aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar í loftslagsmálum árin 2021-2025 og Græna planinu, stefnu Reykjavíkurborgar til 2030. Einnig er lögð fram skýrsla starfshóps um framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu Landspítala, dags. í mars 2023, forathugun Nýs Landspítala vegna nýs húsnæðis fyrir geðþjónustu Landspítala, dags. í september 2024, bréf stýrihóp til borgarstjóra um skipulag framkvæmda við Landspítala og önnur sérhæfð sjúkrahús, dags. 25. nóvember 2024, áfangaskýrsla Eflu vegna kostnaðarmats fyrir mögulegar staðsetningar, dags. 10. september 2025, og frumgreining umhverfis- og skipulagssviðs á lóð, dags. í febrúar 2026. Lýsingin var kynnt frá 25. september 2025 til og með 23. október 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust. Athugasemdir og umsagnir kynntar.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja mikilvæga og löngu tímabæra uppbyggingu nýs geðsviðs Landspítalans á grundvelli nútímalegra viðhorfa um batamiðað meðferðarumhverfi. Sú staðreynd að 5,4 hektara svæði, sem áður var eyrnamerkt íbúðarbyggð borgarinnar (um 200 íbúðir), sé tekið undir starfsemi spítalans kallar þó á ríka hagsmunagæslu af hálfu Reykjavíkurborgar. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að nýr samningur milli borgar og ríkis um úthlutun landsins liggi fyrir og tryggi hagsmuni borgarbúa áður en gengið verður frá aðalskipulagstillögu til lögformlegrar auglýsingar. Jafnframt verður að liggja fyrir hvar skipuleggja eigi þessar 200 íbúðir í Reykjavík í staðinn. Tekið er undir orð embættis skipulagsfulltrúa um áskoranir við fyrirhugaða uppbyggingu á lóðinni þar sem áherslur um batamiðað húsnæði takast á við sjónarmið um að gæta þurfi að áhrifum á nærliggjandi byggð og ásýnd Borgarspítalans. Mikilvægt er að mörkuð verði heildræn sýn um framtíðaruppbyggingu lóðarinnar í heild sinni. Að lokum er vakin athygli á því að opinberar spár gera ráð fyrir tvöföldun á göngudeildarkomum til ársins 2040, en gögn ráðuneytisins sýna líka 22% raunvöxt í réttargeðlækningum milli ára sem spálíkön virðast ganga framhjá. Brýnt er að deiliskipulagsferlið taki mið af þessum rauntölum, tryggi hljóðvist, skýra lausn á staðsetningu þyrlupalls og fullnægjandi samráð við íbúa hverfisins.