Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 353
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Ivon Stefáns Cilia, dags. 8. nóvember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna lóðarinnar nr. 50-52 við Nauthólsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á notkun hússins sem heimilar starfsemi hjúkrunarheimilis ásamt stækkun á byggingarreitum, samkvæmt uppdrætti T.ark arkitekta, dags. 9. janúar 2025. Tillagan var auglýst frá 27. mars 2025 til og með 13. maí 2025. Umsögn barst frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, dags. 13. maí 2025. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2025 og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi Reita, dags. 21. maí 2025, minnisblaði Myrru hljóðstofu, dags. 4. júlí 2025 og minnisblað Loftgæðamælingar VERKVIST dags. 29. júlí 2025. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. september 2025.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar telur breytingu á nýtingu húsnæðis við Nauthólsveg 50-52 í hjúkrunarheimili margt af hinu góða þar sem verið er að nýta húsnæði sem annars þyrfti að byggja. En tekur undir áhyggjur HER að ekki sé um hentugustu staðsetningu vegna nálægðar við flugvöllinn. Einnig vill fulltrúi Framsóknar benda á að starfsemi hjúkrunarheimilis í þessu húsnæði, má ekki verða til þess að skerða þurfi starfssemi flugvallarins en frekar, umfram því sem samið hefur verið um.