Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 353
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Drög að aðalskipulagsbreytingu ásamt umhverfismati (drög) Einnig er lögð fram í trúnaði drög að umhverfisskýrslu Eflu, dags. 6. september 2025.
Svar

Samþykkt að forkynna drög að aðalskipulagsbreytingu sbr. 2.mgr. 30. gr. og lög nr. 111/2021 um umhverfismat áætlana, ásamt drögum að umhverfismati.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar þakka fyrir góða kynningu á drögum að breytingu á aðalskipulagi vegna Sundabrautar. Þar kemur skýrt fram hversu brýnt er að ráðast í framkvæmdina. Rannsóknir sýna að Sundabraut muni skila verulegum samfélagslegum ábata og er ein hagkvæmasta samgöngubótin sem hægt er að ráðast í á landinu. Framkvæmdin mun bæta umferðarflæði, draga úr álagi í Ártúnsbrekku og á Vesturlandsvegi og þar með minnka tafir, sem aftur dregur úr útblæstri og mengun.