Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Stefnisvogs ehf., dags. 3. júlí 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 1 vegna lóðarinnar nr. 54 við Stefnisvog. Í breytingunni sem lögð er til felst að hækka nýtingarhlutfall lóðarinnar, fjölga íbúðum og stækka byggingarreit 6. hæðar, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture dags. 1. júlí 2025. Erindið var í kynningu frá 28. ágúst 2025 til og með 9. október 2025. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Veitna. dags. 8. október 2025.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.