Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. júlí 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjarlægja bíslag við suðausturgafl og byggja í staðinn viðbyggingu á tveimur hæðum og setja kvisti á norðaustur- og suðvesturþekju einbýlishúss á lóð nr. 2 við Grímshaga. Þess er jafnframt óskað að 14.6 ferm. geymsla, mhl.02, verði afskráð enda hafi hún þegar verið fjarlægð. Erindið var grenndarkynnt frá 9. september 2025 til og með 7. október 2025. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.