Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 349
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Stefnisvogs ehf., dags. 3. júlí 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 1 vegna lóðarinnar nr. 54 við Stefnisvog. Í breytingunni sem lögð er til felst að hækka nýtingarhlutfall lóðarinnar, fjölga íbúðum og stækka byggingarreit 6. hæðar, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture dags. 1. júlí 2025.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Verið er að fylgja eftir samþykkt ráðsins frá 18. júní um að víkja frá stöðluðum skilmálum um hlutfall milli stærða íbúða og fylgja betur þörfinni hverju sinni og á hverjum stað fyrir sig, sbr. tillaga um að horfa betur á hlutfall, framboð og eftirspurn íbúða og húsagerða fyrir hvert hverfi fyrir og hverfa frá notkun almennra viðmiða. Með þessu er vilji til að mæta betur eftirspurn á húsnæðismarkaði og taka betur utan um hvert hverfi fyrir sig.