Sogamýri - Breyting á deiliskipulagi - Mörkin 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1032
14. október, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. maí 2025 var lögð fram umsókn Markarinnar fasteignar ehf., dags. 30. apríl 2025, um breytingu á deiliskipulagi Sogamýrar vegna lóðarinnar nr. 8 við Mörkina. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun á núverandi byggingarreit til norðurs og viðbótarbyggingarreita sunnanmegin svo að reisa megi tveggja hæða nýbyggingu við suðurenda núverandi byggingar með samtals 8 íbúðum. Fyrirkomulag aðkomu og bílastæða breytist lítillega, samkvæmt uppdr. KRark ehf., dags. 30. apríl 2025. Einnig eru lögð fram viðbótargögn/uppdrættir KRark ehf. (grunnmyndir, útlit snið og þrívíddarmyndir), dags. 30. apríl 2025. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. október 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. október 2025, samþykkt.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. október 2025, samþykkt.