Lögð fram umsókn
Skurnar ehf.
, dags. 7. október 2025, ásamt bréfi TAG teiknistofu, dags. 7. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi vegna reitanna B, C, D og E. Í breytingunni sem lögð er til felst aukning á nýtingarhlutfalli á reitum C, D og E annars vegar og hins vegar að stækka byggingarreit á reit B, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu, dags. 7. október 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.