Grímshagi 2
Grímshagi 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1025
28. ágúst, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. júlí 2025 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. júlí 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess fjarlægja bíslag við suðausturgafl og byggja í staðinn viðbyggingu á tveimur hæðum og setja kvisti á norðaustur- og suðvesturþekju einbýlishúss á lóð nr. 2 við Grímshaga. Þess er jafnframt óskað að 14.6 ferm. geymsla, mhl.02, verði afskráð enda hafi hún þegar verið fjarlægð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Grímshaga 1, 3 og 4 og Fálkagötu 1, 3 og 5.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024.
Svar

Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024.