Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 329
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á stöðu deiliskipulagstillögunnar fyrir Ártúnshöfða svæði 2B. Svæðið afmarkast af Ártúnshöfða svæði 2A til suðurs, Elliðaárvogi til vesturs og norðurs og til austurs af Ártúnshöfðanum.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fram fer kynning á stöðu deiliskipulagstillögunnar fyrir Ártúnshöfða svæði 2B. Svæðið afmarkast af Ártúnshöfða svæði 2A til suðurs, Elliðaárvogi til vesturs og norðurs og til austurs af Ártúnshöfðanum. Byggja á bílastæðahús með leikvelli á þaki hússins að danskri fyrirmynd. Reynsla af bílastæðahúsum almennt séð hér í borg er misjöfn og oft ólík því sem sjá má í nágrannalöndum. Mörg bílastæðahús eru illa nýtt. Há bílastæðagjöld í húsunum hefur fælingarmátt sem og slæmt aðgengi og þrengsli. Ekki allir eru þess utan tilbúnir til að ganga langt frá bílastæðahúsi og að áfangastað t.d. fjölskyldur með börn og heimilisvörur. Leiksvæði á þaki bílastæðahús er ekki óskemmtileg hugmynd en útilokað er að átta sig á hvort notkun verði mikil á slíkum velli. Fara á í landfyllingu á svæði 2 D Norðurhluti svæðis D í viðbót við þá landfyllingu sem fyrir er. Athyglisvert er að ekkert er minnst á skerðingu á líffræðilegum fjölbreytileika sem samkvæmt venju meirihlutans og skipulagsyfirvalda ætti að gera. Hér er verið að eyðileggja svæði sem er mikilvægt fyrir lífríkið sem verður ekki bætt með því að setja upp nokkra blómapotta í byggðinni.