Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 329
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á umsókn Freys Frostasonar, dags. 6. desember 2024, um nýtt deiliskipulag fyrir Ártúnshöfða, Svæði 7A sem staðsett er við Breiðhöfða 3-5. Í nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir íbúðum og valkvæðri atvinnustarfsæmi á jarðhæðum við Breiðhöfða, einnig er gert ráð fyrir varðveislu Fornalundar sem er gróðursælt útivistarsvæði í samræmi við kvöð um varðveislu hans, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum THG arkitekta, dags. 6. desember 2024. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð, dags. 6. desember 2024, Húsakönnun, dags. í febrúar 2023, Hljóðvistarskýrsla Cowi, dags. 18. júní 2024, Samgöngumat Verkís, dags. 21. júní 2024, og Umhverfismatsskýrsla Verkís, dags. 15. ágúst 2024.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Hér er um mikið byggingarmagn að ræða. Bílastæði eru ekki i samræmi við það. Horft er til samnýtingar og deilibíla sem alveg er óvíst hvort verði eftirsótt úrræði. Gera þyrfti könnun á nýtingu deilibíla og samnýtingar bíla hér í borg áður en haldið er áfram með slíkar tillögur. Gera má ráð fyrir að eignir þarna verði mjög dýrar. Byggingarform er víða flókið, hvöss horn og kantar, gluggar standa ýmist út í ramma eða eru inngreyptir eða innfallnir í húsin. Mikill halli er á sumum þökum, grös eru á þökum sem kallar væntanlega á eitthvað viðhald og er einfaldlega óvíst hvernig muni virka í óveðrum, regni, roki og snjó. Myndir minna um margt á byggingar, hótelraðir á Tenerife, hvítar byggingar og á flestum kynningarmyndum er bæði sól og mikill trjágróður sem er vissulega ekki beint hinn íslenski raunveruleiki. Lýsing á ofanvatnslausnum virkar smá barnaleg og yfirborðskennd. Hér er um ofmat að ræða á blágrænum ofanvatnslausnum að mati fulltrúa Flokks fólksins.