Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 329
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt fram til afgreiðslu ráðsins Þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands - Samvinnuverkefni Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar um heildarsýn fyrir framtíð svæðis Háskóla Íslands, dags. 7. nóvember 2024, bæði unnið af JVST og Jurrlink+Geluk. Sett er fram heildarsýn fyrir svæði Háskóla Íslands sem þróunaráætlun er byggir á samspili umhverfis, borgarskipulags, samgangna og bygginga. Svæðinu er ætlað að bera skýr auðkenni og vera aðlaðandi, fjölbreytt og til fyrirmyndar sem sjálfbært staðbundið samfélag. Fólk og mannlíf verður í forgrunni. Skerpt verður á séreinkennum svæðisins og staðarandi nýttur til að draga fram þau umhverfisverðmæti sem fyrir eru. Enn fremur er stuðst við meginmarkmið og leiðarljós Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, AR2040: að stuðla að kröftugum og sjálfbærum vexti borgar sem styður við markmið um kolefnishlutleysi, vernd náttúrusvæða, líffræðilega fjölbreytni og samkeppnishæft, lífvænlegt, réttlátt og fjölbreytt borgarsamfélag. Vistvænar samgöngur verða í forgangi og grunnþjónusta í göngufæri. Einnig er lagt fram samgöngumat unnið af verkfræðistofunni EFLA, dags. 7. nóvember 2024 sem ber heitið: Samgöngumat - Háskólakampus HÍ - Heildarsýn á ferðavenjur og samgöngukosti - Framtíðarsýn á uppbyggingu háskólasvæðis Háskóla Íslands og samþættingu við Borgarlínu, unnið fyrir umhverfis- og skipulagssvið. Við vinnslu samgöngumats var þróunaráætlun Háskóla Íslands rýnd og önnur uppbyggingaráform á háskólasvæðinu, lagt mat á framtíðaráhrif áætlunarinnar og hvernig byggja mætti undir breyttar ferðavenjur. Sýnt er fram á að samgöngur munu leika lykilhlutverk í þróun háskólasvæðisins til framtíðar. Eins er talið nauðsynlegt að stórefla fjölbreyttar og vistvænar samgöngur innan háskólasvæðisins og höfuðborgarsvæðisins alls og stærsti áhrifavaldurinn í því sambandi er Borgarlínan sem hágæða almenningssamgöngukerfi. Lagt er til að ráðið samþykki að unnið verði áfram að gerð deiliskipulagsáætlana á grundvelli þróunaráætlunarinnar.
Svar

Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar:
Við fögnum vandlega unninni þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands. Um er að ræða samvinnuverkefni Háskólans og Reykjavíkurborgar. Háskólasvæðið hefur lengi einkennst af dreifðum stakstæðum byggingum með stórum bílastæðaflæmum. Áætlunin felur í sér þá framtíðarsýn að háskólasvæðið verði hluti af borgarvefnum en um leið verði sérkenni svæðisins nýtt til að draga fram þau umhverfisverðmæti sem fyrir eru. Svæðinu er ætlað að bera skýr einkenni, vera aðlaðandi og til fyrirmyndar sem sjálfbært staðbundið samfélag. Áhersla er lögð á eflingu vistvænna samgangna meðal annars með tilkomu Borgarlínunnar og grænum tengingum innan svæðisins. Það er líka fagnaðarefni að nýtt er hugmynd úr gamalli samkeppni og gert ráð fyrir undirgöngum fyrir fótgangandi undir Hringbraut við hlið lækjarins sem fellur úr Vatnsmýri í Skothústjörn í Hljómskálagarði.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Margar góðar og metnaðarfullar hugmyndir koma fram í fyrirliggjandi þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands en aðrar vekja spurningar og jafnvel efasemdir. HÍ er líklega stærsti vinnustaður landsins með um fjórtán þúsund nemendur og tvö þúsund starfsmenn, auk fjölda stundakennara. Stór hluti nemenda og starfsmanna sækir skólann langt að, t.d. úr eystri hverfum borgarinnar, nágrannasveitarfélögum og jafnvel utan af landi. Mikilvægt er að huga vel að greiðum aðgangi ólíkra hópa að svæðinu en margir sækja jafnframt skólann meðfram annarri vinnu og eiga því mikið undir því að komast greiðlega til og frá háskólasvæðinu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á ríkt samráð við Stúdentaráð Háskóla Íslands og samtök starfsmanna við frekari útfærslu fyrirliggjandi þróunaráætlunar.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Flokkur fólksins telur að aðgengi virkra ferðamáta (gangandi og hjólandi) verði klárlega betra á svæðinu eftir því sem fram kemur í gögnum. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvernig almenningssamgöngur muni virka. Flokkur fólksins er einnig mjög óviss um hvernig deilifararmátum á eftir að vegna í íslensku samfélagi. Fram kemur að núverandi fjöldi bílastæða sé í hámarki. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að gengið hafi verið of harkalega á bílastæði á sama tíma og bílum fer fjölgandi. Skortur á bílastæðum er víða áþreifanlegur og hefur skapað mikil vandamál. Fram kemur að bílastæðahús verði byggð úr vistvænum efnum til að lágmarka kolefnisspor og með stöðluðum einingum sem geta þannig verið stækkuð eða minnkuð eftir því sem eftirspurn þróast. Það er jákvætt, sveigjanleiki eykur hagkvæmni og notagildi húsanna og lengir líftíma þeirra. Fulltrúa Flokks fólksins finnst jákvætt að heyra að slík bílastæðahús byggja á erlendri fyrirmynd og hafa reynst vel.