Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 337
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á stöðu deiliskipulagstillögu fyrir Ártúnshöfða svæði 2B. Svæðið afmarkast af Ártúnshöfða svæði 2A til suðurs, Elliðaárvogi til vesturs og norðurs og til austurs af Ártúnshöfðanum.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar fagnar áætlunum um uppbyggingu Íbúðasvæðis á Ártúnsholti. Landsvæðið er í eigu borgarinnar og því tækifæri til að stíga inn með auka fjölbreytni í framboð á nýjum eignum á fasteignamarkaði. Hefðbundið húsnæði sem er í uppbyggingu í dag virðist almennt séð allt í formi heimila með tengingu við fremur háar tekjur mögulegra kaupenda . Í því dæmi má nefna fataherbergi og fjölda baðherbergja sem finna má í nýjum eignum og fleira sem tengist nýtískulegum nútíma íbúðum. Teljum við skort á almennum íbúðum sem byggðar eru utan um fjölskyldu en ekki lífsstíl og leggjum til að lagt verði upp með ákveðin fjölbreytileika, litlar íbúðir, íbúðir fyrir barnmargar fjölskyldur, íbúðir fyri fyrstu kaupendur og fleira í bland við nýtískulegar nútíma íbúðir séu sett sem ákveðin skilyrði fyrir uppbyggingaraðila á svæðinu. Einstakt tækifæri er til að stíga inn á markað með lausnir sem gætu stórbætt fasteignamarkað borgarinnar.