Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 359
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn Ragnars Magnússonar, dags. 10. desember 2024, ásamt greinargerð, ódags., um breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsáss vegna lóðarinnar nr. 1 við Döllugötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að í stað húsgerðar Ep-Ib verði lóðin skilgreind fyrir húsgerð E-IIb, þ.e. að heimilt verði að reisa einbýlishús á tveimur hæðum á lóð í stað einbýlishúss á pöllum, samkvæmt uppdr. i62, dags. 10. desember 2024, br. 25. október 2025. Einnig er lagt fram skuggavarp, dags. 28. október 2025. Erindið var grenndarkynnt frá 30. janúar 2025 til og með 17. mars 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. október 2025.
Svar

Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2025, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.