Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 359
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 13. október 2025, þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki uppsögn á samningum bílastæðasjóðs um rekstur gjaldskyldu fyrir eftirtalda einkaaðila, gjaldsvæði 4 (P4). Þetta eru eftirtaldir aðilar: Landspítalinn, stæði við Eiríksgötu 5 og í Fossvogi, HR við Menntaveg og Húsfélagið Borgartúni 8-16 og Katrínartúni 2.
Svar

Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs í samræmi við 1. mgr., 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.