Reynisvatnsás - Breyting á deiliskipulagi - Döllugata 1
Döllugötu 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1005
20. mars, 2025
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ragnars Magnússonar, dags. 10. desember 2024, ásamt greinargerð, ódags., um breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsáss vegna lóðarinnar nr. 1 við Döllugötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að í stað húsgerðar Ep-Ib verði lóðin skilgreind fyrir húsgerð E-IIb, þ.e. að heimilt verði að reisa einbýlishús á tveimur hæðum á lóð í stað einbýlishúss á pöllum, samkvæmt uppdr. i62, dags. 10. desember 2024. Erindið var grenndarkynnt frá 30. janúar 2025 til og með 17. mars 2025. Athugasemdir bárust.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214837 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101673