Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 359
Annað
Fyrirspurn
Fram er kynning á samráðsferli við aðalskipulagstillögu á vinnslustigi og næstu skref Kelda og nágrennis. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa miklum áhyggjum af fyrirhuguðu samgönguskipulagi Keldnalands þar sem ráðgert er að íbúar hafi ekki bílastæði við heimili sín, heldur þurfi að nálgast þau í miðlægum bílastæðahúsum. Telja fulltrúarnir fjarstæðukennt að ætla 12.000 íbúum og 6.000 starfsmönnum svæðisins aðeins 2.230 bílastæði. Íbúar og hagaðilar virðast taka undir sjónarmið sjálfstæðismanna enda hefur komið í ljós að helstu athugasemdir frá íbúum og hagaðilum um vinnslutillöguna sneru að samgöngumálum, fjölda og fyrirkomulagi bílastæða. Mikilvægt verður að gera yfirgripsmiklar breytingar á samgönguskipulaginu svo það þjóni betur þörfum borgarbúa.