Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 353
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna skilgreiningu nýrra lóða við Nauthólsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er ný lóð, Nauthólsvegur 64-66, þar sem flugstjórnarmiðstöðin og spennistöð standa í dag. Auk þess er skilgreind lóð á reit Nauthólsvegar 56-60, Nauthólsvegur 58E. Áður skilgreindir byggingarreitir innan nýrrar lóðar 64-66 haldast óbreyttir og helst heildarbyggingarmagn á reitnum/nýrri lóð óbreytt, bæði ofan- og neðanjarðar. Reitarafmörkun fyrir Nauthólsveg 54 minnkar til samræmis og breytast nýtingarhlutföll vegna breyttra lóða/reitastærða. Á nýrri lóð að Nauthólsvegi nr. 58E verður heimilt að setja upp flugvallarbúnað þ.m.t. mastur allt að 30m hátt, skv. uppdr. T.ark arkitekta, dags. 13. ágúst 2025.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Sumarið 2023 sendi Isavia þrjú erindi til Reykjavíkurborgar með ósk um minni háttar breytingar á skipulagi í því skyni að auka öryggi á Reykjavíkurflugvelli. Erindin varða breytingar á deiliskipulagi vegna nýrra aðflugsljósa við vesturenda flugvallarins, lítils háttar færslu á eldsneytisgeymum innan flugvallarins, og uppsetningu á myndavélamastri fyrir fjarturn á flugvellinum. Óhæfilegur dráttur hefur orðið á afgreiðslu áðurnefndra erinda. Hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítrekað óskað eftir að úr því verði bætt og umrædd erindi lögð sem fyrst fyrir umhverfis- og skipulagsráð til umfjöllunar og afgreiðslu. Ánægjulegt er að fyrirliggjandi tillaga felur m.a. í sér afmörkun lóðar fyrir umrætt myndavélamastur. Æskilegt er að önnur erindi Isavia um skipulagsbreytingar í þágu flugöryggis hljóti afgreiðslu sem fyrst.