Reykjavíkurflugvöllur - Breyting á deiliskipulagi - Nauthólsvegur 50-52
Nauthólsvegur 50
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1001
20. febrúar, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. nóvember 2024 var lögð fram umsókn Ivon Stefáns Cilia, dags. 8. nóvember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna lóðarinnar nr. 50-52 við Nauthólsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á notkun hússins sem heimilar starfsemi hjúkrunarheimilis ásamt stækkun á byggingarreitum, samkvæmt uppdrætti T.ark arkitekta, dags. 9. janúar 2025. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt samgöngumati T.ark arkitekta, dags. 9. janúar 2025.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Vakin er athygli á því að áður en kemur til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi að greiða skv. gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1381/2024.
Svar

Vakin er athygli á því að áður en kemur til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi að greiða skv. gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1381/2024.