Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Freys Frostasonar, dags. 1. október 2024, um breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Bríetartún. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er stækkaður til norðurs og nýtingarhlutfall aukið, heimilt verður að bæta tveimur hæðum ofan á núverandi heimildir á norðausturhluta lóðar, bílastæðum er fækkað um 22 stæði og verða engin bílastæði ofanjarðar á lóð, en við ákvörðun um fjölda bílastæða er farið eftir bíla- og hjólastæðareglum borgarinnar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. THG arkitekta, dags. 3. desember 2024. Tillagan var auglýst frá 9. janúar 2025 til og með 20. febrúar 2025. Athugasemdir og umsögn bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. febrúar 2025 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.