Borgartúnsreitur - Breyting á deiliskipulagi - Bríetartún 3-5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1026
4. september, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. júlí 2025 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 24. júlí 2025, þar sem tilgreint er að stofnunin geti ekki tekið afstöðu til efnis og/ eða forms deiliskipulagsbreytingarinnar þar sem skýra þarf eftirfarandi atriði: Í deiliskipulaginu þarf að gera grein fyrir hvernig fyrirhuguð uppbygging samræmist ákvæðum aðalskipulags fyrir svæðið, í greinargerð þarf að setja fram umfjöllun um almenn umhverfisáhrif breytingarinnar skv. gr. 5.4. í skipulagsreglugerð og þar sem verið er að fækka bílastæðum er æskilegt að það sé skýrt hvort áfram gildi skilmálar deiliskipulags um að stæði fyrir hreyfihamlaða tilheyri bílastæðum í kjallara og þá að skoða hvort tilefni er til að fjölga þeim m.t.t aukinnar uppbyggingar. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt uppdráttum THG Arkitekta, dags. 3. desember 2024, síðast br. 2. september 2025.
Lagt fram.
Svar

Lagt fram.