Borgartúnsreitur - Breyting á deiliskipulagi - Bríetartún 3-5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 984
10. október, 2024
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Freys Frostasonar, dags. 1. október 2024, um breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Bríetartún. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er stækkaður til norðurs og nýtingarhlutfall aukið, heimilt verður að bæta tveimur hæðum ofan á núverandi heimildir á norðausturhluta lóðar, bílastæðum er fækkað um 11 og  verða engin bílastæði ofanjarðar á lóð, en við ákvörðun um fjölda bílastæða er farið eftir bíla- og hjólastæðareglum borgarinnar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. THG arkitekta, dags. 30. september 2024.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.
Svar

Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.