Reitur 1.173.1, timburhúsareitur - Breyting á deiliskipulagi - Laugavegur 54B
Laugaveg 54B
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1014
5. júní, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Shruthi Basappa, dags. 26. maí 2025, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.1, timburhúsareits, vegna lóðarinnar nr. 54B við Laugaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun á byggingarreit og hækkun á vegghæð rishæðar ásamt því að heimilt verði að koma fyrir kvistum á báðum hliðum hússins, svölum á norðurhlið og palli og bíslagi á suðurhlið, samkvæmt uppdr. Sei, dags. 6. maí 2025. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 7. maí 2025.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.
Svar

Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.